Hetjurnar
Klukkan
Hetjurnar
mælingar
19.06.2008 18:53:48 / SuperBarbie

Síðan dauð?!?!?!?!?

Kommon! Ekki drepa síðuna stelpur .. við verðum að halda áfram, ;) hvernig gengur öllum?
Ég finn ykkur!

SuperBarbie


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 21:32:39 / SuperBarbie

Minn fræga súkkulaðibindi!!

Jæja, í gær féll ég um leið á súkkulaði-bindindinu mínu!! Jahá svona er ég .. en ég morgun ætla ég að byrja í bara súkkulaðibindindi, svo fækka ég hinu kannski seinna.. ég má semsagt borða allt annað en súkkulaði, og þá meina ég engar súkkulaðikökur, kex eða súkkulaði ís, NATA!!

Ég ætla í sund í kvöld líka, synda smá og hreyfa mig er reyndar ekki byrjuð á þessum kvöldgöngutúrum ennþá, en meiningin er reyndar að hreyfa mig bara í 30 mínútur á hverjum degi svona extra við allt labbið þegar ég labba um bæinn á daginn haha <img src=" class="wp-smiley" />
Réttast væri nú að fá sér sumarvinnu hjá póstinum og bera út póstinn … *hugs* ehh kannski næsta sumar!

En það er komið fínt veður núna, dreg kannski systur mína með mér í sund í kveld <img src=" class="wp-smiley" />
Mataræðið var alls ekki spes hjá mér í dag allavega hingað til :/

Morgunmatur: Súrmjólk (eplaogperu létt) + finn crisp með osti
Nesti: Ávextir, ab-drykkur og 2 finncrisp með osti
Hádegi: Smá súpa og 2 brauðbollur
Kl. 4: Salatbar + McFlurry!                 JÉBB ÞARNA FÓR ÉG MEÐ ÞAÐ!

Svo er ég ekkert búin að éta síðan .. en það er kvöldmatur á eftir, ekki alveg búin að ákveða með hann
Ekkert meira í bili, ég mun samt þurfa stuðning þegar ég er komin lengra í þessu súkkulaðibindindi (SúkkB) (SB)
Bæjó


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 18:56:54 / Klius

var að kaupa mér hjól :)

jámm.. var að kaupa mér hjól í dag.. á 40 þúsund kall :klikk: dýra drasl... eins gott að nota það þá.
Ég ætla að reyna að hjóla sem oftast í vinnuna í sumar, og taka með mér nesti. Vinn nebbla í sjoppu og er i eldhúsinu :s ekki gott...
en já verðum að verða duglegar að blogga í sumar og stiðja hvor aðra í þessu.. nú gengur ekkert að vera latur, komið gott veður og allt...
kv.klius

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.05.2008 01:56:06 / ElsaM

jæja ég er ný hérna og ég þarf að losna við 25 kíló eftir að barnsburð eða reyndar þurfti þar sem 4 eru loksins farin. ég setti mér það fyrst að losna við 5 kíló áðuren ég myndi fara til útlanda þar sem ég er að fara þangað á næstu dögum þá verð ég að fara drífa mig að losna við þetta eina:)

en já ég stóð í stað sama hvað ég gerði svo fór ég að hugsa minna um þetta og borða bara nammi um helgar og þá ekkert ofga mikið samt. og drekka nánast ekkert gos það kemur samt fyrir. annars borða ég allan annan mat. og svo man ég bara það að drekka rosalega mikið vatn en samt ekkert óeðlilega mikið og te líka.

en jæja þetta er nóg svona í bili, ég er enþá að læra á þetta og það kemur meira seinna...

ElsaM

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.05.2008 19:52:20 / SuperBarbie

Undirsíður í tengil

Hæ!
Ef þið viljið setja undirsíðu í tengil þá byrjið þið á að búa til undirsíðu og vista hana.
Svo farið þið í uppsetningu og í þann tengil sem þið viljið t.d. hetjurnar, þá veljið þið blýantinn! Svo farið þið í nýja síðu og veljið þá síðu sem þið hafið skýrt t.d. nafninu ykkar SuperBarbie .. svo veljið þið stofna og þá vista.. gangi ykkur vel!

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2008 19:04:18 / SuperBarbie

Arg vondu kíló!!


Stop Dieting - Start Living

Ég get ómögulega hrist af mér þessi seinustu kíló!
Ég var 63 kg í morgun..arg! reyndar búin að borða seríós (úbbs)
Spurning hvort maður reyni ekki að hreyfa sig bara meira, þetta er alveg hryllilega pirrandi ég er að missa þolinmæðina.. en ég er GÆS þannig að ég held ótrauð áfram, ég ætla að hafa vigtunardagana mína föstudaga, þannig að ég vigta mig næsta föstudag aftur .. ég pósta því inn hérna sama hvort ég hafi þyngst eða ekki, ég ætla að segja að ég hafi verið 63 kíló í gær þó það hafi verið í morgun, eða klukkan 3 í dag haha ég var á balli í gær þar til undir morgun! Sofnaði um hálf átta í morgun haha

Vonandi gengur öllum vel .. haldið áfram að blogga!! Þið hafið enga afsökun .. þið getið alveg misst 5 mínútur í smá blogg er það ekki?
Ykkar SuperBarbie


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 23:37:39 / wanna

fer minnkandi! :)

jæja...finn einhvernveginn ekki hvernig ég get breytt mælingunum og því...

En ég er nú ekki búin að vera mjög dugleg að stunda þessa síðu...og byrjaði nú ekki mjög vel í þessu átaki...en núna er ég búin að taka mig á, fór í átak í world class og svona...

minnir að ég hafi verið um 95 kg um 15 janúar, svo er ég orðin 90,4 kg núna...svo þetta fer minnkandi! ;)

....þó það mætti nú vera meira...

núna ætla ég sko aldeilis að taka mig á...fer til spánar eftir 7 vikur...get ekki beðið og langar að losna við eitthvað meira fyrir ferðina...allavega 5 kíló...vil ekki vera of bjartsýn...

Annars er ég búin að grennast meira en léttast...allar buxur orðnar of stórar og það alveg um ca. 10 cm! :D hef líka bætt á mig helling af vöðvum...er mjög fljót að byggja upp vöðva...

Svo hefur fituprósentan lækkað um ca. 7 %! :D

Annar vona ég að ykkur gangi öllum vel! verum duglegar fyrir sumarið! :D

kveðja, wanna

(p.s. getur einhver sagt mér vernig ég get skrifað inn nýjar mælingar og svona??)

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.05.2008 15:12:35 / SuperBarbie

Vigtin að minnka :)

Jæja ég vigtaði mig í morgun og ég var 62,6 minnir mig, þannig að ég er búin að missa sirka kíló :)
Sem er fínt, ég ætla bara að halda svona áfram :)

Haldið áfram að vera duglegar elskurnar
SuperBarbie

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.05.2008 19:39:11 / nyresolution

Eyðilegging á síðunni!

Vegna eyðileggingar á síðunni hef ég ákveðið að byrja upp á nýtt!
Þið sem voruð skráðar hingað, sendið mér mail á
katab@hive.is
og ég sendi ykkur lykilorð, ég bið ykkur vinsamlegast að búa til sér aðgang!

Gangi ykkur vel
Kveðja SuperBarbie

» 4 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 12684